» 0 hafa sagt sína skoðun
» 4 hafa sagt sína skoðun
Jæja loksins er kominn föstudagur.... og ég að fara noður á eftir annars er lítið búið að gerast þannig séð í þessari viku....
Spiluðum við KR á miðvikudaginn og ótrúlegt en satt þá vorum við bara ALLS EKKI lélegri en þær bara alveg langt frá því okey við töpuðum 7-2 eða e-ð svoleiðis en það er samt ekki lýsandi úrslit fyrir þennan leik. ALLS EKKI málið er að vörnin var ekki að ná að smella saman eins og hún þurfti þegr spilað er á móti liði eins og KR með Fríðu Olgu í fararbroddi....EKKI SNIÐUGT en já þannig þær tvær náðu að spóla sig í gegn trekk í trekk og vil ég aðallega kenna því um að við vorum að sýna þeim aðeins of mikla virðingu og hugsuðum of mikið VÁ VIÐ ERUM AÐ SPILA Á MÓTI KR.....en þetta er bara ekki svona svakalegt..... ég fékk að spila alveg einn og hálfan hálfleik og stóð é gmig bara ótrúlega vel... þó ég segi sjálf frá okey ég hefði alveg getað betur en rigning og rok á vellinum þannig það var aðeins að segja til sín en æji ég var allavega sátt eftir leikinn
En annars þá er lítið að frétta handboltinn fór eins og hann fór og mér finnst það bara allt í lagi..... þeir stóðu sig rosalega vel á miðað við hvert áfallið á fætur öðru sem liðið fékk á sig og finnst mér að íslenska liðið sé sigurvegari þessa móts því þeir náðu að spila vel þrátt fyrir allt.... og það er ekki hvaða lið sem er sem hafði getað það........ þannig ég er voða ánægð með liðið....
En jú heyrðu ég fór í bíó í gærkvöldi... Erna Dögg bauð mér með þeim, hún vann e-ð fullt af boðsmiðum á þessa mynd, Derailed (eða e-ð svoleiðis ) og vá ég verð að viðurkenna það að mér fannst hún nú bara eiginlega LEIÐINLEG... ég allavega mæli ekki með henni..... hún var skelfileg fyrir hlé en skánaði aðeins eftir hlé en ekki nógu mikið þannig já é gmæli ekki með henni ég er ekki að reyna að vera leiðinleg við Ernu Dögg eða neitt svoleiðis ég meina hún getur ekkert að því gert hvernig mynd hún fékk boðsmiða á en æji þetta er nú bara svona.... en heyriði gelgju kennarinn býður þannig ég ætla að hlusta á e-ð af því sem hún segir í dag þannig é gbið bara að heilsa ykkur í bili og hafið það sem allra best um helgina
hádí
» 1 hafa sagt sína skoðun
» 2 hafa sagt sína skoðun
» 3 hafa sagt sína skoðun
Okey ég verð að gera e-ð í þessu núna... færslan í gær var e-ð frekar snubbótt... en hey það var ekki hægt að kvarta yfir því að ég skrifaði ekki neitt hehe
En já helgin var sem sagt fín eins og ég sagði í gær...... reyndar fékk ég tak í bakið á báðum æfingunum um helgina en það verður bara að hafa það ég ætla EKKI að hætta eða láta þetta bak stoppa mig ekki fræðilegur möguleiki ég ætla að taka á þessu bara. En í annað....
Skólinn er ekki alveg að gera sig þessa dagana... jú reyndar alveg þegar kennararnir verða veikir og svoleiðis það er ROSA fínt neinei ég segi nú bara svona annars þarf maður nú að fara að byrja almennilega á þessu og kannski fara að kaupa sér skólabækur hvernig væri það nú?? HEY BETRA SEINT EN ALDREI það er nú bara svoleiðis jújú þetta er allt í vinnslu er eiginlega bara að bíða eftir því að fá að vita hversu margar skólabækur ég á að kaupa, því ég er enn þá að bíða eftir svari með það hvort ég fái Rekstrarhagfræðina og tölfræðina metna síðan í fyrra fyrir norðan í HA er nú ekki alveg að nenna að sitja þetta aftur. En ég veit samt ekkert hvað ég ætla að gera ef ég fæ þetta svo metið því þá verð ég bara í tveimur kúrsum og þá fær maður engin námslán þannig þá verður maður nú að finna sér einhverja vinnu en hver vill ráða starfsmann sem getur bara unnið á þessum degi fyrir hádegi og næsta allan daginn og svo þann næsta bara eftir hádegi?? Allavega ef ég væri vinnuveitandi þá myndi ég ekki nenna svoleiðis bulli... ég verð nú bara að vera alveg hreinskilin en æji þetta kemur bara í ljós allt saman.......
En út í allt annað........... okey ég skal viðurkenna eitt að ég er búin að fara soldið á SUBWAY núna síðustu daga og ég var að velta fyrir mér hvernig fyrirtæki eins og SUBWAY gæti leyft sér að eiga ekki til vissar áleggstegundir alveg heilu vikuna...... ég ásamt mörgum öðrum næ þessu bara engan veginn ég meina HVAR ER ÞJÓNUSTAN?????? Ég sem sagt fór fyrir helgi og svo aftur í dag eða áðan og svo líka e-ð um helgina en allaveg og það sem ég ætlaði að fá mér hefur bara ekki verið til síðan fyrir helgi sorry ég bara næ ekki hvernig þeir geta leyft sér þetta.... ef einhver skilur það þá má hann/hún eða það endilega fræða mig um þetta en ég sé ekki hvernig þetta getur staðist.....
En jæja ég ætla að fara að finna æfingafötin mín og svoleiðis því ég er að fara á æfingu núna á eftur þannig ég bið bara að heilsa öllum í bili og vona að þið hafi það öll sem allra allra best
bæjó
» 6 hafa sagt sína skoðun
kominn tími á nokkrar línur.....ekki satt ég held það allavega
en já maður er búin að hafa það geggjað gott um jólin... bara jólasteikin hjá gamla settinu heima og kirkja auðvitað og svoleiðis.... endalaust fjör og ekkert annað. Síðan á jóladagsmorgun var brunað norður á tangann og er maður búin að vera þar síðann reyndar með smá skutli í bæinn á miðvikudaginn til að sækja Ísarr... og skipta nokkrum jólagjöfum hehe
já eins og ég segi þá eru þetta búnir að vera snilldar dagar, með spilamennsku, göngutúrum, svefni og vélsleðaútrás og svo fara kannski hestarnir að bætast inn í þetta allt saman snilld það kemur allavega að því
en já svo verð ég bara hérna á tanganum yfir áramótin með alla nálægt mér gamla settið hjá hjá unni systir, nema það vantar nú eiginlega Bjössa bróðir en það verður bara seinna
þar sem þetta er síðasta færslan mín á þessu ári þá vil ég bara óska öllum (aftur) gelðilegra jóla og gleðilegt nýtt ár. Takk æðislega fyrir frábærar stundir á árinu sem er að líða og vonandi verða þær MIKIÐ fleiri á komandi ári Njótið þess að vera til og gerið allt sem ég mundi gera eða allt sem ég myndi EKKI gera hehehe hafið það sem allra best
nýárs knús og kossar
heyrumst á nýju ári